Zulay Pogba, eiginkona Paul Pogba, hefur svarað þeim sem telja að franski miðjumaðurinn eigi að leggja skóna á hilluna.
Pogba hefur glímt við meiðsli á undirbúningstímabilinu hjá Monaco og samkvæmt frönskum fjölmiðlum eru umboðsmenn hans í viðræðum við félagið um að rifta samningnum í sameiningu.
Pogba lék aðeins sex leiki á síðasta tímabili og hefur nú orðið fyrir bakslagi vegna hné- og lærmeiðsla.
„Fyrir alla sem segja að Paul eigi að hætta eða að hann hafi snúið aftur í fótboltann vegna peninga, þá vil ég gera eitt skýrt. Aðeins Guð veit hvenær hann mun hætta,“ skrifaði Zulay á samfélagsmiðlum.
Hún bætti við að fjölskyldan hefði það gott fjárhagslega og að Pogba hefði þegar afrekað það sem marga dreymir um, meðal annars að verða heimsmeistari með Frakklandi.
Pogba sneri aftur í fótboltann í mars 2025 eftir að lyfjabann hans var stytt í áfrýjun. Hann gekk til liðs við Monaco síðasta sumar og lýsti endurkomunni þá sem öðru tækifæri eftir erfitt tímabil.