433

Chelsea vonast til að græða vel á manni sem lítið gat

Mynd
Getty Images

Chelsea er tilbúið að selja Liam Delap aðeins ári eftir að félagið keypti hann frá Ipswich Town, samkvæmt The Sun.

Chelsea greiddi 30 milljónir punda fyrir Delap síðasta sumar en vill nú fá um 50 milljónir fyrir þennan 23 ára gamla framherja.

Delap átti erfitt uppdráttar á sínu fyrsta tímabili á Stamford Bridge og skoraði aðeins tvö mörk í öllum keppnum. Þá er hann sagður hafa átt erfitt með að sannfæra Xabi Alonso, nýjan stjóra Chelsea, á undirbúningstímabilinu.

Nottingham Forest og Everton eru meðal þeirra félaga sem fylgjast með stöðu Delap.

Chelsea vill fækka leikmönnum í stórum leikmannahópi sínum áður en félagaskiptaglugginn lokar en Nicolas Jackson og Marc Guiu gætu einnig yfirgefið félagið.