433

Fyrrum ástkona Ronaldo tjáir sig nú þegar hann er að gifta sig - „Hann virtist hafa gaman af“

Mynd

Breska leikkonan og sjónvarpsstjarnan Gemma Atkinson rifjaði á dögunum upp stutt samband sitt við Cristiano Ronaldo, en ummælin hafa vakið athygli á sama tíma og portúgalska stórstjarnan gengur í hjónaband með Georginu Rodriguez.

Atkinson og Ronaldo voru sögð hafa átt í ástarsambandi árið 2007 þegar framherjinn lék með Manchester United. Í viðtali árið 2022 sagði Atkinson að fyrsta stefnumótið hefði verið langt frá því að vera glæsilegt.

„Við fórum heim til mín, drukkum tebolla og horfðum á Only Fools and Horses. Það gerðist í alvörunni og hann virtist hafa gaman af þáttunum,“ sagði hún.

Mynd

Leikkonan sagði jafnframt að eftir sambandsslitin hefði henni verið boðin há fjárhæð fyrir að tjá sig opinberlega um sambandið við Ronaldo. Hún hafnaði þó öllum slíkum tilboðum.

„Ég fékk mjög góð tilboð um að segja frá sambandinu, en ég hafði engan áhuga á því,“ sagði Atkinson.

Ronaldo yfirgaf Manchester United árið 2009 þegar hann gekk til liðs við Real Madrid og hefur síðan fest sig í sessi sem einn besti knattspyrnumaður sögunnar.

Hann hefur verið í sambandi með Georginu Rodriguez frá árinu 2016 og eiga þau saman fjölskyldu. Parið gengur nú í hjónaband á Madeira, fæðingareyju Ronaldo, eftir nær áratugs samband. Þau trúlofuðu sig árið 2025 og hafa síðan verið eitt þekktasta stjörnupar knattspyrnuheimsins.