Hrannar Snær Magnússon mun að öllu óbreyttu ganga í raðir Víkings á allra næstu dögum samkvæmt heimildum 433.is.
Fótbolti.net sagði fyrst frá mögulegum áhuga Víkings en samkvæmt heimildum 433.is er málið langt komið.
Víkingur hafði verið í viðræðum um kaup á Kjartani Kára Halldórssyni frá FH en af þeim kaupum verður ekki.
Viðræður Víkings við Ólafs Garðarsson umboðsmann Kjartans Kára sigldu í strand og samkvæmt heimildum 433.is verður ekki af skiptunum.
Hrannar Snær er á mála hjá Kristiansund í Noregi en hann gekk í raðir félagsins frá Aftureldingu eftir frábært tímabil á kantinum hjá Aftureldingu í Bestu deild karla.
Hrannar hefur hins vegar ekki náð flugi í Noregi og er á heimleið og mun semja við Víking á allra næstu dögum.