Cristiano Ronaldo og Georgina Rodríguez eru sögð ganga í það heilaga á Madeira um helgina og verður brúðkaupið eitt það glæsilegasta á árinu. Athöfnin á að fara fram í dómkirkju í Funchal og veislan verður haldin á fimm stjörnu Savoy Palace-hótelinu.
Þó gestalistinn hafi ekki verið birtur hafa breskir fjölmiðlar tekið saman nöfn þeirra sem eru ólíklegir til að fá boð.
Á meðal þeirra er Wayne Rooney, fyrrverandi samherji Ronaldo hjá Manchester United. Samband þeirra hefur verið stirt frá heimsmeistaramótinu 2006 og síðar gagnrýndi Rooney endurkomu Portúgalans til United.
Lionel Messi er einnig nefndur, þrátt fyrir gagnkvæma virðingu. Þeir hafa aldrei verið nánir vinir eftir áralanga samkeppni um titilinn besti leikmaður heims.
Fyrrum stjórar Ronaldo hjá Manchester United, Erik ten Hag og Ralf Rangnick, eru einnig á listanum eftir erfið samskipti við leikmanninn.
Jamie Carragher og Gary Lineker eru sagðir ólíklegir gestir eftir að hafa ítrekað haldið því fram að Messi sé betri knattspyrnumaður en Ronaldo.
Þá eru Alessandro Florenzi, Antonio Cassano og fyrrverandi FIFA-forsetinn Sepp Blatter nefndir vegna opinberra deilna við Ronaldo í gegnum árin.
Athygli vekur að Casemiro er einnig nefndur á listanum eftir að hafa nýlega lýst Messi sem besta knattspyrnumanni allra tíma.
Hvort einhver þessara nafna komi þó á óvart í gestahópnum á eftir að koma í ljós þegar brúðkaupið fer fram um helgina.