433

Stjarna enska landsliðsins ákærð - Sakaður um að hafa skallað mann á knæpu

Mynd
Ivan Toney. Mynd/Instagram

Ivan Toney, framherji Al-Ahli og enska landsliðsins, hefur verið ákærður fyrir líkamsárás í kjölfar slagsmála sem áttu sér stað fyrir utan skemmtistað í Soho-hverfinu í London í desember á síðasta ári.

Lögreglan í London staðfesti að hinn þrítugi framherji hafi verið ákærður fyrir líkamsárás sem olli líkamstjóni. Hann á að mæta fyrir dóm í Westminster 24. september, aðeins tveimur dögum áður en enska landsliðið mætir Spáni í Þjóðadeildinni.

Atvikið átti sér stað við skemmtistaðinn 100 Wardour Street. Samkvæmt vitnum hófust átökin þegar maður reyndi að taka sjálfu með Toney og greip utan um hann.

„Hann sagði: 'Slepptu mér, slepptu mér,' áður en ástandið versnaði,“ sagði sjónarvottur við breska fjölmiðla.

Myndskeið sem birtist síðar sýndi lögreglu leiða Toney út af staðnum eftir handtöku. Sjúkrabíll var kallaður á vettvang og einn einstaklingur var fluttur á sjúkrahús, en tveir aðrir fengu aðhlynningu á staðnum.

Toney, sem lék stórt hlutverk með Englandi á heimsmeistaramótinu í sumar, hefur ekki tjáð sig opinberlega um ákæruna. Hann var væntanlegur aftur til æfinga með Al-Ahli fyrir komandi tímabil.