433

Sjónvarpkonan flækt í dómsmál - Unnustinn sakar pabba sinn um gróft ofbeldi

Mynd

Íþróttafréttakonan Laura Woods mætti ásamt unnusta sínum, Adam Collard, í dómshús í Newcastle þar sem faðir Collard er ákærður fyrir að hafa ráðist á son sinn.

William „Billy“ Collard, 56 ára, neitar sök en hann er sakaður um líkamsárás í kjölfar deilna feðganna á síðasta ári. Málið snýst um ágreining þeirra um eignarhald á sumarhúsi á landi Billy í Northumberland.

Fyrir dómi kom fram að Adam hafi mætt að húsinu ásamt lögreglumanni til að skipta um lása. Faðir hans hafi þá lagt bifreið sinni þannig að hún lokaði aðkomunni.

Í kjölfarið hafi komið til harðra átaka þegar Adam reyndi að komast inn í húsið. Hann er sagður hafa hlotið áverka á hálsi og bolur hans rifnað í átökunum.

Réttarhöldunum hefur nú verið frestað til 27. nóvember.

Adam, sem varð þekktur eftir þátttöku sína í Love Island, er trúlofaður Woods. Hún er þekkt úr íþróttaheiminum og hefur meðal annars starfað við umfjöllun um ensku úrvalsdeildina og Meistaradeild Evrópu.

Woods og Collard eiga von á sínu öðru barni saman.