Yfirgnæfandi líkur eru á því að ekkert verði af félagaskiptum Kjartans Kára Halldórssonar til Víkings frá FH. Félögin höfðu komist saman um kaupverð og töldu allir að skiptin færu í gegn.
Samkvæmt heimildum 433.is hefur Víkingur ekki náð saman við Ólaf Garðarsson, umboðsmann Kjartans Kára.
Víkingur lítur svo á að kröfurnar sem Ólafur gerir séu óraunhæfar fyrir sig og skjólstæðing sinn.
Ólafur telur kröfurnar ekki óraunhæfar miðað við þá fjármuni sem Víkingur ætlaði að borga fyrir Kjartan Kára. Í skiptum fyrir Kjartan Kára átti Erlingur Agnarsson meðal annars að fara í FH.
Heimildarmenn 433.is sem eru mjög nálægt félagaskiptunum segja að eitthvað mjög óvænt verði að gerast svo Víkingur og Ólafur komi aftur saman við borðið til að fá félagaskiptin í gegn.
Á Fótbolta.net er svo sagt frá því að Víkingur sé farið að skoða Hrannar Snæ Magnússon kantmann Kristiansund sem gekk í raðir félagsins frá Aftureldingu í byrjun árs.