433

Infantino fær öflugan stuðning frá Suður-Ameríku þrátt fyri mótvindinn

Mynd
Getty Images

Knattspyrnusamband Mexíkó (FMF) hefur ákveðið að styðja Gianni Infantino áfram sem forseta FIFA þrátt fyrir vaxandi gagnrýni á störf hans og gengið gegn afstöðu CONCACAF, knattspyrnusambands Norður- og Mið-Ameríku.

Í yfirlýsingu frá FMF segir að sambandið treysti á „stofnanalegan styrk og góða stjórnsýslu“ og styðji áfram forystu Infantino við þróun alþjóðlegrar knattspyrnu. Þar kemur einnig fram að Mexíkó muni ekki viðurkenna nein ferli sem fari fram utan formlegra stjórnskipulags FIFA.

Staða Infantino hefur veikst verulega undanfarnar vikur eftir umdeildar hugmyndir hans um sölu á hlut í tekjum heimsmeistaramótsins, sem vöktu hörð viðbrögð víða um heim áður en þær voru dregnar til baka.

Skömmu eftir yfirlýsingu Mexíkó lýsti argentínska knattspyrnusambandið einnig yfir stuðningi við Infantino, auk þess sem Afríska knattspyrnusambandið (CAF) hefur staðið með honum.

Á sama tíma hefur UEFA ítrekað vantraust sitt á forsetanum og samkvæmt fréttum hyggst sambandið halda áfram að hóta sniðgöngu heimsmeistaramótsins verði Infantino áfram við völd.