433

Hafa áhuga á því að kaupa Jesus frá Arsenal

Mynd
Getty Images

Napoli hefur samkvæmt Sky Italia áhuga á að fá brasilíska framherjann Gabriel Jesus frá Arsenal í sumar.

Massimiliano Allegri, knattspyrnustjóri Napoli, hefur lengi verið aðdáandi Jesus og er sagt að þeir deili einnig sama umboðsmanni. Til þess að félagið geti hins vegar gert tilboð þarf fyrst að losa pláss í sóknarlínunni.

Napoli vill annaðhvort selja Lorenzo Lucca, sem var á láni hjá Nottingham Forest á síðasta tímabili, eða Romelu Lukaku áður en félagið reynir að landa Jesus.

Samkvæmt Sky Sports News myndi Arsenal sætta sig við tilboð upp á um 18 milljónir punda fyrir hinn 29 ára gamla framherja, sem á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Lundúnafélagið.

Jesus gekk til liðs við Arsenal frá Manchester City árið 2022 en hefur glímt við meiðsli á síðustu misserum og framtíð hans á Emirates virðist nú vera í óvissu.