Antonela Roccuzzo, eiginkona Lionel Messi, nýtur sumarfrísins í botn og deildi á dögunum myndaröð frá lúxusfríi sínu á samfélagsmiðlum.
Á myndunum sést Antonela slaka á í bláu bikiníi fremst á snekkju, auk þess sem hún nýtur sólarinnar við sundlaug í rauðum sundfatnaði. Þá deildi hún einnig myndum af bókum, ávaxtafati og hinu hefðbundna argentínska yerba mate-drykk.
Færslan vakti mikla athygli og meðal þeirra sem sýndu henni stuðning var Georgina Rodríguez, unnusta Cristiano Ronaldo, sem skildi eftir hjarta í athugasemdum.
Það vakti athygli margra þar sem Messi og Ronaldo hafa lengi verið helstu keppinautar knattspyrnuheimsins. Ljóst er þó að engin spenna ríkir á milli fjölskyldnanna, en Antonela hafði nýlega einnig hrósað Georginu fyrir innlegg hennar þar sem hún svaraði gagnrýni á útlit sitt.
Antonela er með yfir 40 milljónir fylgjenda á Instagram og færslur hennar vekja jafnan mikla athygli um allan heim.