433

Bannaður á ruslahaugnum eftir atvik á dögunum - „Ég henti pokunum út og keyrði svo niður aftur“

Mynd

Nicky Butt, fyrrverandi miðjumaður Manchester United, segist hafa verið bannaður í endurvinnslustöð nálægt heimili sínu í Cheshire eftir heiftarlegt rifrildi við starfsfólk.

Butt greindi frá atvikinu í hlaðvarpinu The Good, The Bad & The Football. Hann sagðist hafa ætlað að losa sig við pappa og ruslapoka þegar starfsmaður stöðvaði hann við innganginn.

Samkvæmt Butt taldi starfsmaðurinn að Range Rover-bifreið hans væri atvinnubíll þar sem aftursætin voru lögð niður. Þá hafi hann einnig sakað fyrrverandi landsliðsmanninn um að reyna að fela hluti í bílnum vegna dökkra rúðna.

„Ég varð brjálaður. Þetta voru bara pappakassar og nokkrir ruslapokar sem höfðu safnast upp eftir að ég missti af ruslahirðunni,“ sagði Butt.

Hann viðurkenndi að hafa ekið inn á svæðið þrátt fyrir fyrirmæli starfsmannsins og losað ruslið sitt á meðan starfsmaður elti hann upp brekkuna með talstöð í hönd.

„Ég henti pokunum út og keyrði svo niður aftur. Hann var öskureiður. Niðurstaðan er sú að ég er bannaður á ruslahaugnum,“ sagði Butt og hló að lokum sögunnar.

Butt lék yfir 350 leiki fyrir Manchester United og vann meðal annars sex ensku meistaratitla og Meistaradeild Evrópu.