433

Arsenal skoðar ótrúlegt efni sem er líkt við Kvaratskhelia

Mynd

Arsenal heldur áfram að leita að efnilegum framtíðarleikmönnum og sendi njósnara á Evrópudeildarleik Larne og Iberia 1999 á þriðjudag.

Samkvæmt enskum blöðum voru fulltrúar Lundúnaliðsins þar til að fylgjast með georgíska miðjumanninum Andria Bartishvili, sem aðeins er 17 ára gamall.

Bartishvili hefur verið á radar Arsenal í nokkra mánuði og hefur vakið athygli fyrir skapandi sóknarleik sinn. Hann hefur jafnvel verið líkt við landa sinn Khvicha Kvaratskhelia, stjörnu Paris Saint-Germain.

Arsenal er þó ekki eitt um hituna. PSG hefur einnig áhuga á leikmanninum, auk nokkurra félaga á Ítalíu.

Bartishvili er nú á láni hjá Iberia 1999 frá Kolkheti 1913, en talið er að hann verði seldur á næstu dögum þar sem áhugi stórliða Evrópu eykst.

Arsenal hefur á undanförnum árum lagt mikla áherslu á að fá unga og efnilega leikmenn til félagsins og Bartishvili gæti orðið næsta fjárfesting félagsins til framtíðar.