433

Var nýlega kjörinn sá besti - Féll skyndilega frá á mánudag

Mynd

Pólski knattspyrnuheimurinn er í sorg eftir að Mateusz Bąk, fyrrverandi markvörður Lechia Gdansk, lést skyndilega á mánudag, aðeins 43 ára að aldri.

Bąk var í miklum metum hjá stuðningsmönnum Lechia og hafði nýlega verið valinn besti markvörður í sögu félagsins í kosningu meðal stuðningsmanna.

Hann kom upp í gegnum yngri flokka Lechia og lék með aðalliðinu frá 2001 til 2011 og aftur á árunum 2013 til 2017. Bąk fylgdi félaginu í gegnum mikla uppbyggingu og allar deildir, frá neðsta þrepi pólska deildarkerfisins og upp í efstu deild.

Alls lék hann 245 leiki fyrir félagið og skoraði eitt mark. Á ferlinum lék hann einnig með Wisła Płock og Podbeskidzie Bielsko-Biała auk þess að reyna fyrir sér í Portúgal og Búlgaríu.

Bąk lagði hanskana á hilluna árið 2017 en starfaði síðar sem markmannsþjálfari í akademíu Lechia til ársins 2022.

Lechia hefur ákveðið að taka treyju númer 24 úr umferð til heiðurs Bąk.

„Frá og með deginum í dag mun þetta númer tilheyra þér að eilífu. Við munum aldrei gleyma þér, Bączek,“ sagði í yfirlýsingu félagsins.