433

Sagan um Vini Jr á enda - Skrifaði undir sex ára samning við Real

Mynd
Vinicius Junior dansar Getty Images

Vinicius Junior hefur skrifað undir nýjan langtímasamning við Real Madrid og er nú samningsbundinn spænska stórveldinu til sumarsins 2032.

Fabrizio Romano greinir frá þessu en samkvæmt honum hefur Brasilíumaðurinn skrifað undir sex ára samning við félagið.

Vinicius hefur verið hjá Real Madrid frá árinu 2018 þegar hann kom til félagsins frá Flamengo í heimalandinu. Hann hefur síðan fest sig í sessi sem einn af lykilmönnum liðsins.

„Átta ár á Bernabéu eru svo stuttur tími… sex ár í viðbót og að eilífu, Real Madrid," sagði Vinicius eftir undirskriftina.

Vinicius hefur unnið fjölda stórra titla með Real Madrid og ljóst er að félagið ætlar honum áfram stórt hlutverk á næstu árum.