Rodri hefur í fyrsta sinn opnað á möguleikann á félagaskiptum til Barcelona samkvæmt fréttum Jijantes FC.
Samkvæmt miðlinum hefur spænski landsliðsmaðurinn látið Barcelona vita að hann sé reiðubúinn að ræða persónulega samningsskilmála ef félagið ákveður að gera tilraun til að kaupa hann frá Manchester City.
Barcelona fer þó varlega í málið þar sem Real Madrid hefur einnig verið sterklega orðað við miðjumanninn undanfarna daga. Endanleg ákvörðun Rodri mun því ráða miklu um framhaldið.
Rodri er enn samningsbundinn Manchester City og hefur ekki tilkynnt félaginu formlega um framtíðaráform sín. Ef viðræður við Barcelona halda áfram gætu félagaskiptin orðið eitt stærsta mál lokadaga félagaskiptagluggans.
Hinn 30 ára gamli miðjumaður hefur verið lykilmaður hjá City undanfarin ár og er eftirsóttur af stærstu félögum Evrópu.