Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari KR var í síðustu viku í áhugaverðu viðtali í hlaðvarpi Jóns Ólafssonar. Eitt af því sem kom fram er að Óskar sér eftir því að hætta með Gróttu árið 2019 til þess að taka við Breiðablik.
Óskar hafði komið Gróttu upp í efstu deild í fyrsta sinn í sögu félagsins, hann ákvað að hætta störfum til að taka við Blikum þar sem hann starfaði í fjögur ár.
„Þetta var gríðarlega erfið ákvörðun, ég var búin að sannfæra mig að ég þyrfti að taka skrefið og fá meiri pressu," sagði Óskar í viðtalinu við Jón Ólafsson.
Hann segist í dag sjá eftir því að hafa tekið skrefið yfir í Kópavoginn og útskýrir af hverju.
„Þetta var mjög erfið ákvörðun, ég sé eftir henni í dag. Ég hefði getað verið í fullu starfi hjá Gróttu, ég hefði viljað sjá hvað ég hefði getað komist langt með þetta. Gústi Gylfa tekur við og gerir hlutina á sinn hátt, sem er hefðbundin leið. Ég hugsa að það hefði hentað Gróttu betur að koma upp sem pönkarar til að skemma partýið. Við komumst ekki að því hvort það hefði tekist," sagði Óskar en Grótta féll á sínu fyrsta og eina ári í efstu deild.
Óskar var rekinn frá Breiðablik haustið 2023, hann hafði þá ætlað sér að hætta eftir tímabilið til að taka við Haugesund en var gert að hætta strax. Af hverju endaði það svona?
„Ég held að það sem að hafi gerst er að ég háði of mörg stríð. Ég valdi mér ekki stríðin, heldur tók öll stríð. Þegar ég tala um stríð, þetta, laga þetta, og svo þarf að laga þetta og gera þetta innan félagsins. Ég tók alltaf stríðið, það skipti engu máli hvað það var. Á endanum held ég að menn hafi hugsað "Þetta er fínn náungi, en hann er ekkert eðlilega þreytandi, erfiður og leiðinlegur. Og ætlarðu að hætta eftir tímabilið. Getur þú ekki bara hætt núna´," sagði Óskar Hrafn.
Jón spurði þá Óskar út í það hvort hann gæti unnið undir fólki, verður hann að ráða öllu?
„Ég hugsa að þetta hafi verið komið þangað, komdu með yfirmann sem er öflugur. Hluti af veseninu í Breiðablik og hluti af af því er að þjálfarar upplifi sig eina, eina sem þeir hugsa um er meistaraflokkur karla í því félagi sem þeir starfa hjá. Næstu menn yfir þeim eru endurskoðendur, bankamenn, fjölskyldumenn í krefjandi störfum. Það býr til spennu, að þú upplifir að þeim sé alveg sama um þetta. Af hverju eru þeir ekki að vinna hérna baki brotnu að gera þetta betra? Það er óréttlátt að ætlast til þess að sjálfboðaliðum, margir gera það en það verður einhver gjá á milli. Eftir á að hyggja, þegar maður lítur í eigin barm sem maður þarf að gera. Ég tæklaði ekki þessa gjá á milli mín og meistaraflokksráðs karla. Þar voru menn með fullt að gera, voru ekkert að hugsa hvort þessi flugleið í Evrópu væri að henta Breiðablik sem dæmi. Ég hefði getað tæklað það betur.“
„Ég hugsa til tímans hjá Blikum með ekkert nemar fallegar hugsanir.“