Trabzonspor er ekki hætt að styrkja sóknarlínuna eftir komu Mohamed Salah. Samkvæmt tyrkneska miðlinum Spor Depor vinnur félagið nú að því að fá úrúgvæska framherjann Darwin Núñez til félagsins.
Núñez, sem er 27 ára, er nú samningsbundinn Al-Hilal í Sádi-Arabíu en Trabzonspor vonast til að geta sameinað hann á ný með Salah, sem var liðsfélagi hans hjá Liverpool.
Salah gekk nýverið til liðs við tyrkneska félagið og er stærsta stjarnan í sögu félagsins. Nú vilja forráðamenn Trabzonspor halda áfram metnaðarfullri uppbyggingu með því að bæta Núñez við hópinn.
Ekki hefur enn komið fram hvort viðræður séu komnar á formlegt stig, en talið er að Trabzonspor skoði möguleikann á að semja við Al-Hilal um félagaskiptin.
Ef af verður myndu Salah og Núñez leiða saman sóknarlínu Trabzonspor í baráttunni um tyrkneska meistaratitilinn og sæti í Evrópukeppni.