433

Mikil reiði í klefanum hjá Arsenal eftir mjög lélegan æfingaleik

Mynd
Mikel Arteta, stjóri Arsenal. Getty Images

Mikel Arteta segir leikmenn Arsenal hafa verið afar ósátta eftir 3:1 tap gegn Real Betis í æfingaleik í Dublin.

Arsenal lenti snemma undir þegar Rodrigo Riquelme kom spænska liðinu yfir og Nelson Deossa bætti við öðru marki. Piero Hincapié minnkaði muninn fyrir Arsenal áður en Pablo Fornals skoraði þriðja mark Betis fyrir leikhlé.

Varnarleikur Arsenal vakti mikla gagnrýni en í byrjunarliðinu voru meðal annars Ben White, Riccardo Calafiori, Cristhian Mosquera og Hincapié.

Eftir leikinn sagði Arteta að leikmenn hans væru langt frá því að vera sáttir.

„Þeir eru mjög svekktir. Þeir eru virkilega reiðir og það er gott. Það er nákvæmlega það sem við þurfum,“ sagði spænski knattspyrnustjórinn.

Hann benti þó á að stór hluti leikmannahópsins hefði aðeins nýlega snúið aftur til æfinga eftir sumarfrí og að nokkrir hefðu aðeins verið þrjá daga með liðinu.

Arsenal mætir Borussia Dortmund í Emirates-bikarnum um helgina áður en liðið leikur síðasta æfingaleik sinn gegn Como. Næst tekur við Samfélagsskjöldurinn gegn Manchester City áður en Englandsmeistararnir hefja titilvörn sína í úrvalsdeildinni.