433

Manchester United staðfestir kaup á gríðarlegu efni

Mynd

Manchester United hefur gengið frá kaupum á hinum 18 ára gamla Cristian Orozco frá Fortaleza í Kólumbíu.

Orozco er miðjumaður og hefur verið hluti af yngri landsliðum Kólumbíu. Hann hefur meðal annars leikið með U17 ára landsliði þjóðarinnar.

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Orozco þegar fengið tækifæri í efstu deildinni í heimalandinu. Hann kom við sögu í fimm leikjum með Fortaleza á síðustu leiktíð áður en Manchester United tryggði sér þjónustu hans.

Orozco mun ekki fara beint inn í aðallið United heldur verður hann fyrst um sinn hluti af akademíu félagsins þar sem hann fær tækifæri til að aðlagast enskum fótbolta.

United hefur á undanförnum árum lagt aukna áherslu á að fá efnilega unga leikmenn til félagsins og er Orozco nýjasta viðbótin í þann hóp.