Lögreglan í Suður-Kóreu gerði í gær húsleit á skrifstofum knattspyrnusambands landsins (KFA) vegna rannsóknar á ráðningu fyrrverandi landsliðsþjálfarans Hong Myung-bo.
Rannsóknin beinist að því hvort brotið hafi verið gegn reglum við ráðningu Hong árið 2024 og hvort háttsettir embættismenn sambandsins hafi haft óeðlileg afskipti af ferlinu. Málið er rannsakað sem mögulegt brot sem tengist misbeitingu valds og stjórnsýslu.
Hong sagði starfi sínu lausu í júní eftir að Suður-Kórea féll óvænt úr leik í riðlakeppni heimsmeistaramótsins. Liðið tapaði þar meðal annars 1:0 fyrir Suður-Afríku og náði ekki í 32-liða úrslitin þrátt fyrir miklar væntingar.
Landsliðið var skipað þekktum leikmönnum á borð við Son Heung-min, Kim Min-jae og Lee Kang-in og var af mörgum talið eitt sterkasta lið landsins um árabil.
Hong tók ábyrgð á slæmu gengi liðsins þegar hann kom fyrir nefnd þingmanna í júlí, en gagnrýni hefur einnig beinst að stjórn KFA. Forseti Suður-Kóreu, Lee Jae Myung, hefur sakað forystu sambandsins um vanhæfni og sagt að ráðningar hafi verið litaðar af klíkuskap og persónulegum tengslum.
Knattspyrnusamband Suður-Kóreu hefur ekki tjáð sig um rannsóknina.