433

Gagnrýnir skrefið hjá Salah og segir hann of góðan fyrir Tyrkland

Mynd

Jamie Carragher telur að Mohamed Salah hefði átt að velja sér stærra félag en Trabzonspor eftir brottförina frá Liverpool í sumar.

Salah var á miðvikudag kynntur sem nýr leikmaður tyrkneska félagsins og fékk stórkostlegar móttökur þegar um 25 þúsund stuðningsmenn söfnuðust saman á flugvellinum í Trabzon til að fagna komu hans.

Carragher segir þó að hinn egypski markaskorari sé enn nógu góður til að spila með stærstu liðum Evrópu.

„Ég trúði aldrei að hann myndi fara til Sádi-Arabíu, því hann er einfaldlega of góður fyrir það. Ég hélt að hann myndi enda hjá liði eins og AC Milan eða Juventus,“ sagði Carragher í Football Ramble.

Hann telur að tyrkneska deildin sé skref niður á við fyrir leikmann af gæðum Salah.

„Mér finnst Tyrkland einfaldlega ekki nógu hátt stig fyrir hann. Hann er betri en það. Ég hélt að hann myndi vilja halda áfram að spila á stærsta sviðinu og í Evrópukeppnum.“

Salah skrifaði undir tveggja ára samning við Trabzonspor og er sagður launahæsti leikmaður í sögu tyrknesku úrvalsdeildarinnar.