433

Frábær tíðindi frá Tottenham - Sást loksins á æfingasvæðinu eftir langa fjarveru

Mynd

Dejan Kulusevski hefur tekið mikilvægt skref í átt að endurkomu eftir alvarleg hnémeiðsli sem hafa haldið honum frá keppni í rúmt ár.

Tottenham birti myndskeið frá æfingasvæði félagsins á miðvikudag þar sem sænski landsliðsmaðurinn sést æfa með bolta. Framfarir hans hafa vakið mikla ánægju meðal stuðningsmanna Spurs.

Kulusevski er þó ekki enn byrjaður að æfa með aðalliðinu og á enn talsvert í land áður en hann snýr aftur inn á völlinn.

Roberto De Zerbi, knattspyrnustjóri Tottenham, vill fara varlega í endurhæfinguna og forðast að setja óþarfa pressu á hinn 26 ára gamla kantmann með því að gefa út tímasetningu á endurkomu hans.

Einnig sást Mohammed Kudus á æfingasvæðinu en hann hefur verið frá keppni síðan í janúar vegna lærmeiðsla.

Tottenham vonast til að fá báða leikmenn aftur til leiks síðar á tímabilinu, en félagið ætlar að taka enga áhættu með endurkomu þeirra.