433

Forráðamenn Real Madrid rólegir og telja að Vini Jr skrifi undir

Mynd
Vinicius Junior Getty Images

Óvissan um framtíð Vinicius Junior hjá Real Madrid heldur áfram, en spænska stórveldið bíður nú eftir svari frá brasilíska landsliðsmanninum við nýju samningstilboði.

Samkvæmt enskum miðlum hefur Real boðið Vinicius nýjan samning sem myndi færa honum yfir 19 milljónir punda í árslaun. Núverandi samningur hans rennur út eftir næsta tímabil og vill félagið tryggja framtíð eins síns mikilvægasta leikmanns.

Arsenal fylgist grannt með þróun mála og hefur þegar látið Vinicius vita að félagið sé tilbúið að reyna að fá hann takist samningaviðræður við Real ekki.

Fulltrúar Viniciusar funduðu með José Ángel Sánchez, framkvæmdastjóra Real Madrid, og Juni Calafat, yfirmanni leikmannaleitar félagsins, í vikunni. Þá hefur José Mourinho, knattspyrnustjóri Real Madrid, einnig gert það skýrt að Brasilíumaðurinn sé stór hluti af framtíðaráætlunum hans.

Á sama tíma vakti Vinicius athygli þegar hann eyddi öllum myndum, ævisögu og prófílmynd af Instagram-reikningi sínum. Slíkar aðgerðir eru ekki óalgengar hjá knattspyrnumönnum en hafa engu að síður ýtt undir vangaveltur um stöðu hans.

Þrátt fyrir það eru forráðamenn Real sagðir bjartsýnir á að Vinicius skrifi undir nýjan samning og haldi áfram á Santiago Bernabéu.