Brasilíski knattspyrnudrengurinn Micael Leandro da Silva er látinn, aðeins 15 ára gamall, eftir að hafa orðið fyrir skoti í árás sem lögregla segir að hafi verið mistök.
Atvikið átti sér stað í borginni Maceió á laugardag, skömmu eftir vináttuleik á áhugamannamóti. Samkvæmt rannsókn lögreglu var Micael ekki skotmark árásarinnar heldur lenti fyrir tilviljun í skothríð sem talin er tengjast deilum á milli glæpagengja sem stunda fíkniefnaviðskipti.
Micael var fluttur á sjúkrahús en lést síðar af sárum sínum. Nokkrir aðrir slösuðust einnig í skotárásinni.
Faðir hans, Marcos Antônio Leandro, sagði fjölskylduna vera miður sín.
„Leiknum var nýlokið og hann var að skipta um föt. Hann hafði enga möguleika á að flýja. Ég er gjörsamlega miður mín. Systkini hans hafa ekki hætt að gráta,“ sagði faðirinn við brasilíska fjölmiðla.
Micael þótti einn efnilegasti ungi leikmaðurinn á sínu svæði. Hann hafði verið í akademíu São Paulo, æfði með CSA og átti að ganga til liðs við Retrô FC á næstu dögum.
Á síðasta tímabili hjálpaði hann U15-liði São Paulo að vinna Copa Fictor-mótið og framtíð hans þótti afar björt.
Lögreglan hefur yfirheyrt vitni og skoðar upptökur úr öryggismyndavélum til að hafa uppi á árásarmönnunum. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins, sem hefur vakið mikla sorg í brasilíska knattspyrnusamfélaginu.