433

Fengu loksins greiðslu frá FIFA en ætla ekki að styðja Infantino

Mynd
Getty Images

Forseti knattspyrnusambands Jórdaníu, Ali prins bin Hussein, segir að FIFA hafi loks greitt út verðlaunafé sem sambandið hafði beðið eftir í átta mánuði. Hann ítrekar þó að það muni ekki breyta afstöðu sambandsins gagnvart forseta FIFA, Gianni Infantino.

Ali prins sakaði fyrr í vikunni Infantino um að hafa tafið greiðsluna og gefið í skyn að stuðningur Jórdaníu við endurkjör hans sem forseta FIFA myndi greiða fyrir lausn málsins.

„Við fengum loksins það sem leikmenn og þjálfarar áttu inni vegna úrslitaleiks Arababikarsins í Katar. Þetta er jákvætt fyrir okkar fólk, en breytir engu um alvarlegar áhyggjur okkar af stjórn FIFA,“ sagði Ali prins í yfirlýsingu.

Hann bætti við að greiðslan hefði átt að berast fyrir átta mánuðum og að sambandið myndi hvorki styðja né kjósa Infantino í komandi forsetakosningum FIFA.

FIFA greiddi fjármunina sama dag og neyðarfundur var haldinn í Marokkó þar sem æðstu stjórnendur sambandsins lýstu yfir áframhaldandi stuðningi við Infantino, sem hefur sætt harðri gagnrýni undanfarið vegna stjórnunar sinnar á alþjóðasambandinu.