433

Beckham fer yfir nýja hönnun sína - Sækir innblástur í æsku sína

Mynd

David Beckham og Gary Neville hafa kynnt nýjan heimabúning og endurhannað merki Salford City, en eigendurnir vilja færa félagið nær rótum sínum.

Beckham og Neville urðu helstu eigendur félagsins árið 2025 eftir að hafa áður verið hluti af eigendahópi með félögum sínum úr hinum fræga „Class of '92“. Nú hafa þeir ákveðið að færa Salford aftur í upprunalegu appelsínugulu og svörtu litina, í stað rauða búningsins sem félagið hefur notað undanfarin ár.

Við kynninguna rifjaði Beckham upp fyrstu árin sín í Salford, þar sem hann keypti sitt fyrsta hús og bjó með eiginkonu sinni Victoriu þegar ferill hans hjá Manchester United var að hefjast.

„Þegar við fórum nýlega aftur á Littleton Road þurfti ég að ganga aðeins einn. Ég varð tilfinningaríkur. Það var í fyrsta skiptið í 25 eða 30 ár sem ég kom þangað aftur,“ sagði Beckham.

Æfingasvæðið Littleton Road, þar sem hann og Gary Neville æfðu undir handleiðslu goðsagnarinnar Nobby Stiles, er nú í eigu Salford City og hyggjast eigendurnir gera það upp.

Beckham sagði að Salford væri sérstakur staður fyrir sig.

„Fólkið hér er jarðbundið, hart af sér og umhyggjusamt. Ég man alltaf eftir svörtu og appelsínugulu fánunum hjá Salford. Þegar félagið varð rautt fannst mér fyrsta verkefnið vera að færa litina aftur.“

Nýja félagsmerkið sækir einnig innblástur í sögu borgarinnar með ljóni og rauðri rós Lancashire. Beckham sagði að hann hefði eytt sjö mánuðum í að finna rétta appelsínugula litinn á búningnum.