Mikel Arteta hefur þakkað Christian Nørgaard fyrir framlag sitt til Arsenal eftir að danski miðjumaðurinn gekk í raðir Everton fyrir sjö milljónir punda.
Nørgaard kom til Arsenal frá Brentford síðasta sumar fyrir um tíu milljónir punda en náði aldrei að festa sig í sessi. Hann lék aðeins 101 mínútu í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en naut engu að síður mikillar virðingar innan herbúða félagsins.
„Hann lék gríðarlega mikilvægt hlutverk fyrir okkur,“ sagði Arteta.
„Þegar ég fékk hann til félagsins sagði ég að hann gæti orðið límið í hópnum. Hann hefur einstaka hæfileika til að sameina leikmenn og halda kröfunum háum.“
Arteta hrósaði einnig framlagi Nørgaard inni á vellinum þegar hann fékk tækifæri, en sagðist skilja vel ákvörðun hans um að leita eftir stærra hlutverki.
„Hann fær frábært tækifæri hjá stórufélagi sem ég þekki vel. Ég óska honum alls hins besta og þakka honum fyrir samstarfið,“ sagði Arteta.