Ferran Torres, hetja Spánverja í úrslitaleik heimsmeistaramótsins, hefur skýrt umdeilda húfu sem hann klæddist í sigurhátíð liðsins eftir mótið.
Torres skoraði eina markið í 1:0 sigri Spánar á Argentínu í úrslitaleiknum og vakti síðar athygli þegar hann bar húfu með slagorðinu „Make Spain Great Again“, sem minnir á hið þekkta slagorð Donalds Trump, „Make America Great Again“.
Húfan vakti miklar umræður og jafnvel Hvíta húsið brást við á samfélagsmiðlum með skilaboðunum. „Allir vilja vera hluti af hreyfingunni.“
Torres segir hins vegar að húfan hafi ekkert haft með stjórnmál að gera.
„Þetta var bara skemmtilegt augnablik. Þetta snerist ekki um stjórnmál því ég veit hreinskilnislega lítið um stjórnmál,“ sagði hann í viðtali við CNN.
„Ég vildi bara sjá Spán á toppnum sem heimsmeistara. Ég var einfaldlega að skemmta mér með vinum og fjölskyldu.“
Torres sagðist einnig hafa horft „þúsund sinnum“ á sigurmarkið sitt í úrslitaleiknum.
„Ég man varla eftir markinu sjálfu. Ég man bara tilfinninguna. Fyrir mér var enn magnaðra að sjá liðsfélagana hlaupa til mín en að skora markið sjálft,“ sagði spænski framherjinn.