Malo Gusto gæti verið á leið frá Chelsea áður en félagaskiptaglugganum lokar en Paris Saint-Germain hefur sett franska bakvörðinn á óskalista sinn.
Samkvæmt enskum blöðum telja forráðamenn PSG að Gusto gæti veitt Achraf Hakimi harða samkeppni í hægri bakvarðarstöðunni og Luis Enrique hafi þegar samþykkt að reyna að fá leikmanninn til félagsins.
Staða Gusto hjá Chelsea hefur veikst eftir komu Marco Palestra frá Atalanta fyrir 43 milljónir punda í sumar. Chelsea þarf jafnframt að selja leikmenn til að uppfylla reglur um fjárhagslegt jafnvægi.
Chelsea er þó ekki tilbúið að láta Gusto fara á lágu verði. Félagið er sagt vilja fá um 75 milljónir punda fyrir hinn 23 ára gamla Frakka og PSG metur nú hvort það sé tilbúið að greiða þá upphæð.
Manchester City hefur einnig verið orðað við Gusto í sumar, en Enzo Maresca, fyrrverandi stjóri Chelsea, er sagður vilja endurnýja samstarfið við varnarmanninn.