433

Manchester United að losa sig við tvo markverði

Mynd
Getty Images

Altay Bayindir er á leið til Celta Vigo eftir að Manchester United veitti tyrkneska landsliðsmarkverðinum leyfi til að ferðast til Spánar og ganga frá félagaskiptunum.

Samkvæmt Daily Mail verður Bayindir lánaður til Celta út tímabilið, en spænska félagið fær kauprétt á markverðinum fyrir um 3,5 milljónir punda. Celta mun jafnframt greiða öll laun hans og samningurinn inniheldur ýmsar árangurstengdar greiðslur. Manchester United heldur einnig eftir háu endursöluákvæði ef kauprétturinn verður nýttur.

Bayindir, sem er 28 ára, kom til Manchester United frá Fenerbahce árið 2023 fyrir 4,3 milljónir punda. Hann lék aðeins 17 leiki fyrir félagið og hefur lengi verið orðaður við brottför þar sem hann vill fá reglulegan spiltíma.

Á sama tíma hefur United samþykkt að selja tékkneska markvörðinn Radek Vitek til Middlesbrough fyrir allt að 14 milljónir punda, með endurkaupsákvæði og 35 prósenta endursöluhlut í samningnum.