433

Fundu glufu í reglunum til að koma honum inn í þjálfarateymið

Mynd

Erik Lamela hefur fundið sér óvenjulegt starf eftir að hafa lagt skóna á hilluna. Fyrrverandi leikmaður Tottenham hefur verið ráðinn búningastjóri hjá mexíkóska félaginu Monterrey.

Argentínumaðurinn, sem er 34 ára, hætti knattspyrnuiðkun síðasta sumar vegna langvarandi mjaðmameiðsla. Eftir ferilinn hóf hann störf hjá Sevilla sem hluti af þjálfarateymi Matías Almeyda.

Þegar Almeyda tók við Monterrey fyrr á þessu ári fylgdi Lamela honum til Mexíkó. Hann getur þó ekki starfað sem þjálfari þar sem hann hefur enn ekki lokið þeim þjálfararéttindum sem mexíkóska deildin krefst.

Monterrey fann því leið til að hafa Lamela við hlið Almeyda með því að skrá hann sem búningastjóra. Það gerir honum kleift að sitja á varamannabekknum á leikdögum á meðan hann vinnur að UEFA Pro-þjálfaragráðu sinni.

Lamela lék með Tottenham frá 2013 til 2021 eftir að hafa komið frá Roma. Hann spilaði 257 leiki fyrir Lundúnafélagið, skoraði 37 mörk og vann meðal annars Puskás-verðlaunin árið 2021 fyrir glæsilegt rabona-mark gegn Arsenal.