Mikil óvissa ríkir um framtíð eignarhalds West Ham United en samkvæmt enskum miðlum gæti baráttan um félagið endað fyrir dómstólum.
Hópur fjárfesta undir forystu Amöndu Staveley hefur náð samkomulagi um kaup á25 ,1 prósents hlut fjölskyldu Davids Gold heitins fyrir um 150 milljónir punda. Kaupin eru talin fyrsta skrefið í átt að því að ná yfirráðum yfir félaginu.
Daniel Kretinsky, sem á 27 prósenta hlut í West Ham, hefur hins vegar brugðist við. Samkvæmt The Times hyggst tékkneski auðkýfingurinn selja hluta af eign sinni þannig að hún fari undir 25 prósent. Með því gæti hann sjálfur nýtt forkaupsrétt hluthafa á hlut Gold-fjölskyldunnar án þess að þurfa að gera tilboð í hlut Davids Sullivan, stærsta eiganda félagsins.
Daily Mail greinir þó frá því að þessi ráðstöfun Kretinskys gæti leitt til málaferla. Talið er að salan á hlut hans til landa hans, Jakub Havrlant, kunni að brjóta gegn samþykktum West Ham og gæti því verið ólögmæt.
Málið gæti því ráðist fyrir dómstólum á næstu vikum.