Roberto De Zerbi hikaði ekki við að hafa samband við Jan Paul van Hecke um leið og Tottenham tryggði sæti sitt í ensku úrvalsdeildinni á lokadegi síðasta tímabils.
Í viðtali við Daily Mail sagði ítalski knattspyrnustjórinn að hann hefði sent hollenska varnarmanninum skemmtileg skilaboð strax eftir 1:0-sigurinn á Everton.
„Ég skrifaði: „Fjandinn hafi það! Þú reyndir að fella Tottenham þegar þú lagðir upp markið fyrir Brighton. Nú verður þú að koma til mín. Þú hefur ekkert val!““ sagði De Zerbi og hló.
Van Hecke lagði upp jöfnunarmark Brighton gegn Tottenham í 2:2 jafntefli í apríl, úrslit sem settu Spurs í erfiða stöðu í fallbaráttunni.
Tottenham hefur síðan keypt Van Hecke frá Brighton fyrir 52 milljónir punda. Félagið hefur einnig fengið Sandro Tonali, Mateus Fernandes, Andy Robertson og Marcos Senesi í sumar.
De Zerbi segir félagaskiptagluggann þó langt frá því að vera búinn.
„Við erum aðeins um 60 prósent búin með sumarið,“ sagði hann og gaf þannig til kynna að fleiri nýir leikmenn gætu verið á leið til Tottenham.