Arsenal hefur ekki gefist upp á voninni um að fá Ezri Konsa frá Aston Villa og er talið undirbúa nýtt tilboð í enska landsliðsmiðvörðinn.
Arsenal er að kaupa Bruno Guimares frá Newcastle og virðist Konsa næsta skotmark.
Samkvæmt Daily Mail er Konsa áfram efsti kostur Arsenal til að styrkja miðvörðinn, sérstaklega þar sem William Saliba glímir við langvarandi meiðsli. Fyrsta tilboð Lundúnaliðsins var hins vegar langt undir 60 milljóna punda verðmati Aston Villa og var hafnað.
Villa vill halda Konsa og hefur hafið viðræður við hann um nýjan samning. Hinn 28 ára gamli varnarmaður á tvö ár eftir af núverandi samningi sínum.
Eftir að hafa þegar selt Morgan Rogers til Chelsea og Youri Tielemans til Manchester United fyrir samanlagt yfir 140 milljónir punda er Aston Villa ekki undir fjárhagslegri pressu til að selja fleiri lykilmenn.
Arsenal hefur þó enn mikinn áhuga á Konsa og er talið ætla að gera aðra atlögu á næstu dögum í von um að sannfæra Villa um sölu.