Georgina Rodríguez hefur svarað harðri gagnrýni sem hún hefur orðið fyrir á samfélagsmiðlum eftir að hafa birt myndir úr sumarfríi sínu með Cristiano Ronaldo á Mallorca.
Rodríguez, sem á þrjú börn með Ronaldo og er stjúpmóðir þriggja barna hans til viðbótar, segir leiðinlegt að sjá hvernig fólk dæmi líkama annarra út frá myndum á samfélagsmiðlum.
„Líkami minn mun breytast, rétt eins og líkami allra kvenna. Og ég vona að hann haldi áfram að breytast í mörg ár enn, því það þýðir að ég sé enn á lífi. Ég er stolt af mjöðmunum mínum,“ skrifaði hún á Instagram.
Hún sagði jafnframt að það væri mikilvægt fyrir börnin sín að læra að virði fólks byggðist ekki á útliti eða skoðunum ókunnugra.
„Ég vil kenna dætrum mínum, ásamt Cris, sem ég er afar stolt af sem föður og manneskju að virði einstaklings ræðst aldrei af útliti hans eða áliti annarra.“
Rodríguez sagðist hafa séð alls kyns athugasemdir við myndirnar úr fríinu.
„Sumir gagnrýna líkama minn, aðrir verja mig. Það fyndna er að þetta gerist á hverju sumri. Á hverju ári verða líkamsvöxtur minn og útlit fréttaefni.“
Hún segir að samfélagið þurfi að endurmeta hvernig það tali um líkamsímynd.
„Hver ákveður hvað sé hinn „rétti“ líkami? Höldum við virkilega enn að hamingjan hafi ákveðna stærð? Ég elska línurnar mínar. Ég elska frelsið til að lifa í líkamanum sem ég vel.“
Rodríguez segir Ronaldo hafa stutt sig í gegnum gagnrýnina og hjálpað sér að láta neikvæð ummæli ekki hafa áhrif á sig.
Parið er nú í fríi á Mallorca en samkvæmt erlendum miðlum hyggst það ganga í hjónaband síðar í vikunni í heimabæ Ronaldos, Funchal á Madeira.