Folarin Balogun gæti verið á leið aftur í ensku úrvalsdeildina en samkvæmt enskum miðlum hefur framherjinn verið boðinn Tottenham.
Balogun, sem leikur með Mónakó í Frakklandi, er sagður hafa verið boðinn Spurs í gegnum milliliði. Fulltrúar leikmannsins hafi haft samband við Tottenham og kynnt möguleikann á félagaskiptum.
Roberto De Zerbi, knattspyrnustjóri Tottenham, er sagður vilja fá annan öflugan framherja til að auka samkeppni við Dominic Solanke og breikka sóknarlínu liðsins.
Balogun yfirgaf Arsenal árið 2023 eftir 15 ár hjá félaginu og hefur síðan leikið með Mónakó. Óvissa er sögð ríkja um framtíð hans hjá franska félaginu og það gæti opnað dyrnar fyrir sölu í sumar.
Hinn bandaríski landsliðsmaður vakti mikla athygli á heimsmeistaramótinu þar sem hann skoraði þrjú mörk í fyrstu tveimur leikjum sínum.
Tottenham hefur enn ekki tekið ákvörðun um hvort félagið muni gera tilboð, en Balogun er sagður vera raunhæfur kostur ef Mónakó er tilbúið að selja á viðráðanlegu verði.