433

Talið ómögulegt fyrir United að kaupa manninn sem þeir vilja

Mynd
Lewis Hall Getty Images

Manchester United heldur áfram að fylgjast grannt með Lewis Hall, vinstri bakverði Newcastle United, en líkurnar á félagaskiptum eru taldar afar litlar.

Samkvæmt Laurie Whitwell hjá The Athletic er Hall áfram ofarlega á óskalista Manchester United, sem leitar að langtímaeftirmanni Luke Shaw. Hins vegar sé samningur mjög flókinn þar sem Newcastle hafi enga áætlun um að selja leikmanninn.

Heimildir Whitwell herma að Newcastle hafi nú gert það skýrt innan félagsins að hinn 21 árs gamli bakvörður verði ekki seldur í sumar.

Newcastle hefur þegar misst tvo lykilmenn á félagaskiptamarkaðnum, Anthony Gordon og Sandro Tonali, og jafnframt er Arsenal enn að reyna að fá fyrirliðann Bruno Guimarães til félagsins.

Vegna þess vilja forráðamenn Newcastle ekki missa fleiri lykilleikmenn áður en tímabilið hefst.

Hall er samningsbundinn Newcastle til ársins 2029 og er talinn einn efnilegasti vinstri bakvörður Englands. Því þyrfti afar stórt tilboð til að fá Newcastle til að endurskoða afstöðu sína.