433

Staðfest að Salah fer til Tyrklands - Gerir tveggja ára samning

Mynd
Getty Images

Mohamed Salah mun halda ferlinum áfram hjá tyrkneska félaginu Trabzonspor, samkvæmt félagaskiptafréttamanninum Fabrizio Romano.

Romano greinir frá því að samkomulag sé í höfn og notar sitt þekkta „Here we go“ til að staðfesta félagaskiptin. Trabzonspor hefur jafnframt staðfest að samningur sé í höfn við egypska sóknarmanninn.

Salah gengur til liðs við félagið sem frjáls leikmaður eftir að hafa yfirgefið Liverpool í sumar. Hann hefur samþykkt tveggja ára samning við tyrkneska stórliðið.

Hinn 34 ára gamli Salah skrifaði nafn sitt í sögubækur Liverpool á tíma sínum hjá félaginu og varð einn besti leikmaður í sögu þess. Nú bíður hans ný áskorun í tyrknesku úrvalsdeildinni, þar sem Trabzonspor bindur miklar vonir við að reynsla hans og markahæfileikar hjálpi liðinu í titilbaráttunni á komandi tímabili.

Formleg staðfesting á félagaskiptunum er nú aðeins formsatriði.