433

Segja það algjöra falsfrétt að forsetinn ætli að nýta sér vinskap við Trump

Mynd
Getty Images

FIFA hefur hafnað því að Gianni Infantino hafi reynt að leita sér pólitísks stuðnings hjá bandarískum stjórnvöldum til að tryggja endurkjör sitt sem forseti alþjóðaknattspyrnusambandsins.

New York Post greindi frá því að Infantino hefði ætlað að eiga símtal við Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, þar sem hann hygðist ræða mikilvægi knattspyrnunnar sem „mjúks valds“ fyrir Bandaríkin. Heimildarmenn blaðsins töldu þó að raunverulegur tilgangur samtalsins hefði verið að afla sér áhrifamikils stuðnings fyrir forsetakjörið hjá FIFA árið 2027.

FIFA hefur hins vegar vísað fréttinni alfarið á bug og segir að ekkert slíkt símtal hafi verið á dagskrá, hvorki við Rubio né annan ráðherra í ríkisstjórn Donalds Trump.

Framtíð Infantino sem forseta FIFA hefur verið mikið til umræðu eftir að hann lagði fram umdeilda tillögu um að selja einkafjárfestum 20 prósenta hlut í FIFA Forward Enterprise, dótturfélagi sem hefði farið með tekjur af stærstu mótum sambandsins.

Tillagan mætti harðri andstöðu frá fjölmörgum knattspyrnusamböndum og nokkrar þjóðir hótuðu að sniðganga heimsmeistaramótið ef hún yrði samþykkt. Infantino dró áformin síðar til baka, en gagnrýnin hefur engu að síður skaðað stöðu hans.

Enska og velska knattspyrnusambandið hafa þegar lýst því yfir að þau muni ekki styðja Infantino til áframhaldandi setu í embætti þegar kosið verður um nýjan forseta FIFA í mars 2027.