Tim Vickery, sérfræðingur í suður-amerískri knattspyrnu, telur að spennan milli Kylian Mbappé og Vinicius Junior hjá Real Madrid sé raunveruleg.
Í samtali við Sky Sports sagði Vickery að vandamálið snúist ekki aðeins um stór egó heldur einnig um leikfræðilega þætti.
„Án nokkurs vafa er eitthvað í gangi. Þetta er ekki bara barátta um að vera stærsta stjarnan heldur líka vegna þess að þeir vilja báðir spila á sömu svæðum vallarins,“ sagði Vickery.
Hann benti á að þótt Vinicius sé jafnan talinn kantmaður og Mbappé framherji, þá sæki báðir leikmenn inn á svipuð svæði í sóknarleiknum.
„Það er mjög erfitt að láta þá virka saman. Carlo Ancelotti tókst það ekki og hann er einn besti þjálfari heims þegar kemur að því að laga lið að styrkleikum leikmanna sinna,“ sagði Vickery.
Að hans mati hefur komu Mbappé til Real Madrid haft mest áhrif á Vinicius.
„Mbappé er án efa vandamál fyrir Vinicius,“ sagði sérfræðingurinn.