Arsène Wenger ætlar ekki að yfirgefa starf sitt hjá FIFA þrátt fyrir að UEFA hafi aukið þrýsting á alþjóðasambandið í kjölfar hinnar umdeildu FIFA Forward Enterprise-áætlunar.
Samkvæmt The Times hefur UEFA sent FIFA formlegt bréf þar sem sambandið segist íhuga málsókn, gerðardóm eða aðrar lagalegar aðgerðir vegna áætlunarinnar um að selja einkafjárfestum hlut í tekjum af heimsmeistaramótinu. Áætlunin var dregin til baka um helgina eftir harða gagnrýni.
Í bréfinu er Wenger, ásamt 13 öðrum háttsettum stjórnendum FIFA, beðinn um að varðveita öll gögn og rafræn skjöl sem tengjast verkefninu.
Þrátt fyrir umræðuna segir The Times að Wenger hafi engan áhuga á að láta af störfum. Frakkinn telur sig enn hafa mikilvægu hlutverki að gegna við uppbyggingu og þróun knattspyrnu um allan heim, sérstaklega í yngri flokkum.
Wenger tók við starfi yfirmanns alþjóðlegrar knattspyrnuþróunar hjá FIFA árið 2019, ári eftir að 22 ára farsælum ferli hans sem knattspyrnustjóri Arsenal lauk.