433

Hausverkur Alonso verður svakalegur - 46 leikmenn í aðalliðshóp Chelsea

Mynd
Xabi Alonso Getty Images

Xabi Alonso stendur frammi fyrir risastóru verkefni hjá Chelsea áður en tímabilið hefst. Samkvæmt heimasíðu félagsins eru nú 46 leikmenn skráðir í aðalliðshópinn og ljóst að stór hreinsun þarf að eiga sér stað áður en félagaskiptaglugganum lýkur.

Chelsea hefur verið eitt umsvifamesta félagið á markaðnum í sumar. Morgan Rogers kom fyrir 117 milljónir punda og einnig hafa Danny Welbeck, Jordan Henderson, Maxence Lacroix, Marco Palestra, Emmanuel Emegha og fleiri bæst í hópinn. Á sama tíma hafa fáir leikmenn yfirgefið Stamford Bridge.

Marc Cucurella er farinn til Real Madrid og Tyrique George hefur verið seldur til Everton, auk þess sem nokkrir ungir leikmenn hafa farið á lán. Það dugir þó skammt til að minnka leikmannahópinn.

Samkeppnin er gríðarleg í flestum stöðum, sérstaklega í sókninni þar sem Welbeck, Liam Delap, João Pedro, Marc Guiu, Nicolas Jackson og Emmanuel Emegha berjast um mínútur. Þá hafa einnig bæst við ungstirnin Dastan Satpayev og Denner, sem þó eru ekki enn skráðir á heimasíðu félagsins.

Chelsea þarf einnig að taka ákvörðun um framtíð fjölda leikmanna. Trevoh Chalobah er orðaður við Como, Axel Disasi við Crystal Palace og West Ham og Benoît Badiashile hefur vakið áhuga Napoli. Mykhailo Mudryk er kominn aftur eftir að lyfjamál hans var leyst og hefur þegar vakið áhuga þriggja úrvalsdeildarfélaga.

Ólíkt forvera sínum Enzo Maresca vill Alonso forðast að mynda svokallaðan „sprengjuhóp“, þar sem leikmenn sem voru ekki í framtíðaráformum æfðu aðskildir frá aðalliðinu.

Næstu vikur verða því afar annasamar hjá Chelsea, sem þarf að selja eða lána fjölmarga leikmenn áður en úrvalsdeildartímabilið hefst. Markmið Alonso er að minnka hópinn verulega og skapa jafnvægi í leikmannavali fyrir komandi tímabil.