433

Barcelona sagt ætla í stríð við Real Madrid um Rodri

Mynd

Óvissa ríkir áfram um framtíð Rodri hjá Manchester City en samkvæmt spænska miðlinum Sport er Barcelona nú tilbúið að blanda sér í baráttuna um spænska landsliðsmanninn.

Rodri hefur verið sterklega orðaður við Real Madrid undanfarnar vikur og Paris Saint-Germain hefur einnig verið nefnt til sögunnar. Nú er hins vegar talið að Barcelona undirbúi tilboð í hinn 30 ára gamla miðjumann.

Fram kemur að Manchester City hafi tímabundið sett viðræður við Real Madrid á ís þar sem félagið búist við því að Barcelona leggi fram formlegt tilboð áður en félagaskiptaglugganum lýkur.

Real Madrid hóf viðræður um Rodri fyrir um tíu dögum síðan með samþykki Florentino Pérez, forseta félagsins, en samkomulag hefur ekki náðst.

Samkvæmt fréttinni er einnig talið að Rodri velti því fyrir sér hvort Barcelona gæti hentað honum betur en Real Madrid. Þar er bent á að hann telji sig hugsanlega geta þróast betur sem leikmaður hjá Börsungum en undir stjórn José Mourinho hjá Real Madrid.

Manchester City vill þó halda í lykilmann sinn og reynir enn að fá hann til að skrifa undir nýjan samning.