Aron Einar Gunnarsson hefur sent stuðningsmönnum Þórs skilaboð eftir að hann kvaddi félagið á ný og samdi við Qatar SC í Katar.
Aron gekk til liðs við uppeldisfélagið þegar félagaskiptaglugginn opnaði í síðasta mánuði og lék aðeins einn leik, eftirminnilegan 2:1-sigur á Íslandsmeisturum Víkings. Skömmu síðar barst honum tilboð frá Katar sem varð til þess að hann yfirgaf Akureyri á ný.
Í orðsendingu sem birt var á akureyri.net segist Aron hafa átt erfitt með ákvörðunina.
„Hlutirnir gerðust alltof hratt í erfiðustu ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum – að fara aftur til Katar eftir aðeins einn leik með Þór í þetta skipti,“ skrifar hann til stuðningsmanna í bréfi á Akureyri.net
Aron segir brottförina hafa undirstrikað hversu sterkt hann tengist félaginu.
„Ákvörðunin var mjög erfið og það sýnir mér hve ég er tengdur þessum klúbbi sterkum böndum; þetta er mitt lið, það er mitt fólk sem sér um liðið og mitt fólk sem styður það.“
Hann segist hafa fengið tilboðið í kringum leikinn gegn Víkingi og því hafi dvölin orðið mun styttri en hann hafði ætlað sér.
Þá lofar fyrrverandi landsliðsfyrirliðinn að snúa aftur til Þórs þegar atvinnumannaferlinum lýkur.
„Þegar ég kem heim næst verður það til þess að klára ferilinn með mínu fólki.“
Að lokum biður Aron stuðningsmenn Þórs um skilning.
„Ég vona að þið, kæru Þórsarar, berið virðingu fyrir ákvörðuninni sem ég tók fyrir fjölskylduna og sjálfan mig. Höldum áfram að berjast saman í þessu og fögnum að lokum!“ skrifar Aron Einar.