Marokkóska knattspyrnukonan Faten Ben Amar El Azizi er látin aðeins tvítug að aldri eftir hörmulegt slys þegar hún reyndi að komast frá Marokkó yfir til spænska sjálfstjórnarsvæðisins Ceuta.
Samkvæmt erlendum miðlum drukknaði El Azizi þegar tugþúsundir Marokkóbúa reyndu að komast yfir landamærin í mikilli fjöldahreyfingu í síðustu viku. Margir reyndu að synda fram hjá landamærahindrunum.
El Azizi lék með Maghreb Atlético Tetuán í svæðisdeildinni í Marokkó og þótti efnileg knattspyrnukona. Félag hennar staðfesti andlátið í tilfinningaríkri yfirlýsingu.
„Draumur hennar endaði áður en hann gat ræst. Hún var ekki að leita að frægð eða ævintýrum heldur betra lífi og framtíð sem hún trúði að biði hennar hinum megin við landamærin,“ sagði í yfirlýsingunni.
Marokkóska leikmannasambandið hefur einnig vottað fjölskyldu hennar, liðsfélögum og allri knattspyrnuhreyfingunni samúð vegna hins hörmulega atburðar.