433

Trump sagður ætla að beita sínum kröftum svo Infantino haldi starfi

Mynd
Getty Images

Donald Trump Bandaríkjaforseti hyggst gera allt sem í hans valdi stendur til að Gianni Infantino haldi áfram sem forseti FIFA, samkvæmt heimildum Telegraph.

Infantino hefur sætt mikilli gagnrýni undanfarna daga eftir að umdeild áætlun hans um að opna fyrir einkafjárfestingu í viðskiptarétti heimsmeistaramótsins féll um sjálfa sig. Í kjölfarið hefur þrýstingur aukist á að hann segi af sér embætti.

Heimildarmenn Telegraph segja að Trump hafi miklar mætur á Infantino eftir heimsmeistaramótið í Bandaríkjunum í sumar.

„Trump líkar mjög vel við Infantino“ og telur að hann hafi staðið að „besta heimsmeistaramóti sögunnar,“ er haft eftir heimildum blaðsins.

Á sama tíma er stuðningur við Infantino sagður minnka meðal aðildarsambanda FIFA. Nokkur knattspyrnusambönd hafa þegar dregið stuðning sinn til baka og sífellt fleiri vilja að ný forysta taki við stjórn alþjóðasambandsins.

Óljóst er hvort stuðningur Trump muni hafa áhrif á framtíð Infantino, en staða FIFA-forsetans hefur sjaldan verið jafn veik og nú.