433

Grafa upp konuna sem kemur með - Næringarfræðingur sem vekur víða athygli

Mynd

Bruno Guimarães er áfram sterklega orðaður við Arsenal og ef af félagaskiptunum verður mun eiginkona hans, Ana Lidia Martins, flytja með honum til Lundúna.

Samkvæmt enskum miðlum hefur brasilíski landsliðsmaðurinn áhuga á að ganga til liðs við Arsenal, sem er sagt undirbúa tilboð upp á rúmlega 75 milljónir punda. Newcastle vill þó fá hærri upphæð fyrir fyrirliðann, sem er samningsbundinn félaginu til ársins 2029.

Mynd

Bruno gekk til liðs við Newcastle frá Lyon árið 2022 og hefur síðan skorað 31 mark og lagt upp önnur 32 í 195 leikjum. Hann átti stóran þátt í að Newcastle vann enska deildabikarinn árið 2025, fyrsta stóra titil félagsins í sjötíu ár.

Eiginkona hans, Ana Lidia Martins, er næringarfræðingur og hefur verið í sambandi með Bruno frá árinu 2020. Þau gengu í hjónaband árið 2023 við athöfn við styttuna frægu í Rio de Janeiro og eiga tvo syni, Matteo og Pietro.

Mynd

Ana er vinsæl á samfélagsmiðlum með yfir 140 þúsund fylgjendur á Instagram, þar sem hún deilir reglulega myndum úr fjölskyldulífi sínu, ferðalögum og daglegu lífi. Ef Arsenal tekst að landa Bruno gæti fjölskyldan því verið á leið til höfuðborgar Englands á næstu vikum.