René Meulensteen, fyrrverandi þjálfari Manchester United undir stjórn Sir Alex Ferguson, hefur verið ráðinn í nýtt starf hjá enska félaginu Stockport County.
Benóný Breki Andrésson er framherji félagsins.
Hinn 62 ára gamli Hollendingur verður yfirmaður knattspyrnuaðferðafræði hjá félaginu. Í því hlutverki mun hann leiða uppbyggingu knattspyrnudeildarinnar og vinna að þróun starfsins innan félagsins.
Meulensteen starfaði hjá Manchester United í samtals tólf ár á tveimur tímabilum, fyrst á árunum 2001 til 2006 og síðan aftur frá 2007 til 2013.
Hann yfirgaf Old Trafford eftir að Sir Alex Ferguson lét af störfum og áður en David Moyes tók við stjórnartaumunum.
Stockport bindur miklar vonir við reynslu Meulensteen og telur ráðningu hans mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu félagsins.