433

Trump sver af sér alla aðkomu að hinu umdeilda máli

Mynd
Getty Images

Gianni Infantino, forseti FIFA, hefur hætt við umdeild áform sín um að opna fyrir einkafjárfestingu í heimsmeistaramótinu eftir mikla gagnrýni og skort á stuðningi innan alþjóðaknattspyrnunnar.

Samkvæmt erlendum miðlum féllu tillögurnar endanlega þegar Asíusambandið (AFC) bættist í hóp þeirra sem höfnuðu hugmyndinni. Þar með voru 135 af 211 aðildarsamböndum FIFA, eða um 64 prósent, andvíg breytingunum.

Áformin fólu í sér stofnun nýs dótturfélags sem færi með rekstrar- og viðskiptaleg réttindi heimsmeistaramótsins, með þátttöku einkafjárfesta.

Donald Trump Bandaríkjaforseti, sem sagður var hafa verið upplýstur um hugmyndina, sagðist hins vegar ekkert vita um málið.

Þegar hann var spurður hvort Infantino hefði rætt tillögurnar við sig svaraði hann fyrst: „Hver?“ og bætti síðan við: „Nei, ég hef ekki rætt við hann.“

Innanhúss jókst einnig andstaðan. Carlos Cordeiro, ráðgjafi Infantinos hjá FIFA, sagði starfi sínu lausu og skömmu síðar gagnrýndi Kevin Lamour, framkvæmdastjóri FIFA, hugmyndina opinberlega.

UEFA, CONCACAF og fleiri knattspyrnusambönd höfðu áður fordæmt tillögurnar og litið svo á að þær gætu grafið undan sjálfstæði og framtíð heimsmeistaramótsins. Með brotthvarfi tillagnanna virðist málinu því lokið í bili.